Hvort sem við trúum því eða ekki, þá er október að verða búinn og nóvember að taka við. Mánuðurinn fyrir jól! Án þess að við viljum vera að stressa ykkur upp. Jólin koma á sama tíma og alltaf, hvort sem þú sért „búin/n að öllu“ eða ekki.
En það er ennþá nógur tími og við höfum allan nóvember til að hugsa um núna. Hvað segja stjörnurnar okkur um þennan skemmtilega mánuð?
Tvíburinn
21. maí – 21. júní
Áherslan í nóvember verður á breyttar hugmyndir, samskipti og það hvernig heimurinn sér þig. Þú ferð yfir gamlar hugmyndir og sérð hvað virkar og hvað ekki. Kannski þarftu að endurhugsa suma samninga, sambönd eða daglegar venjur.
Þegar kemur að vinnu og/eða námi skaltu vera varkár með skjöl, pósta og önnur gögn. Fljótfærni gæti dregið dilk á eftir sér.
Gefðu þér tíma til að taka þátt í minni hópum og samfélögum sem endurspegla áhugamálin þín. Þú átt það til að finna fyrir afbrýðissemi og eigingirni og skalt vera vakandi fyrir því í öllum samskiptum.


