Hvort sem við trúum því eða ekki, þá er október að verða búinn og nóvember að taka við. Mánuðurinn fyrir jól! Án þess að við viljum vera að stressa ykkur upp. Jólin koma á sama tíma og alltaf, hvort sem þú sért „búin/n að öllu“ eða ekki.
En það er ennþá nógur tími og við höfum allan nóvember til að hugsa um núna. Hvað segja stjörnurnar okkur um þennan skemmtilega mánuð?
Vogin
23. september – 22. október
Nóvembermánuður snýst um jafnvægi fyrir þig. Sérstaklega jafnvægi milli sjálfsmyndar þinnar og þarfa annarra. Þér gæti fundist þú vera dregin/n í sitthvora áttina, bæði í samböndum og í vinnu og fólk vill meira frá þér en þú hefur orku í að gefa.
Nú er góður tími fyrir þig til að skoða samskiptamynstur, hlusta á allar hliðar málanna og segja aðeins það sem þú meinar, því stundum getur verið betra að segja minna en meira.
Í samböndum er þetta dýpsti mánuður ársins; og þú átt í hreinum og beinum samskiptum. Þessi mánuður er ekki sá besti til að taka stóra fjárhagslega áhættu. Þú ættir að nota fyrri reynslu til að læra af og breyta framtíðaráformum þínum. Eftir miðjan mánuðinn áttarðu þig á því að þú þarft ekki að þóknast öðrum alltaf.


