Stjörnuspá fyrir nóvember 2025 – Bogmaðurinn

Hvort sem við trúum því eða ekki, þá er október að verða búinn og nóvember að taka við. Mánuðurinn fyrir jól! Án þess að við viljum vera að stressa ykkur upp. Jólin koma á sama tíma og alltaf, hvort sem þú sért „búin/n að öllu“ eða ekki.

En það er ennþá nógur tími og við höfum allan nóvember til að hugsa um núna. Hvað segja stjörnurnar okkur um þennan skemmtilega mánuð?

Bogmaðurinn
22. nóvember – 21. desember

Í upphafi mánaðarins gætu komið fram hlutir sem þú hefur verið að forðast að skoða, óuppgerð tilfinningamál og ósagðar hugsanir. Þú ert að læra að staldra við og hugsa málið áður en þú hleypur af stað og það er jafnvægið milli innsæis þíns og ævintýramennskunar verður lykillinn að framtíð þinni. Í samböndum gæti verið þörf á hreinskilni og heiðarleika — segðu það sem þú meinar, en með hlýju.

Þú finnur fyrir mikilli hreyfingu í nóvember, bæði innra með þér og ytra. Þú ert orkumikil/l um miðjan mánuðinn sem hvetur þig til bjartsýni, ferðalaga, náms og nýrra tækifæra.

Í starfi eða sköpunarverkefnum eru mikil tækifæri ef þú notar tímann til að endurskipuleggja og leggja traustan grunn fyrir desember og janúar.