Hvort sem við trúum því eða ekki, þá er október að verða búinn og nóvember að taka við. Mánuðurinn fyrir jól! Án þess að við viljum vera að stressa ykkur upp. Jólin koma á sama tíma og alltaf, hvort sem þú sért „búin/n að öllu“ eða ekki.
En það er ennþá nógur tími og við höfum allan nóvember til að hugsa um núna. Hvað segja stjörnurnar okkur um þennan skemmtilega mánuð?
Krabbinn
21. júní – 22. júlí
Nóvember mun snúast um traust, ræturnar þínar og hvernig þú stendur með sjálfri/um þér í breytingum. Það verður einhver órói í kringum samskipti en þú gætir hlotið upplýsingar eða skilaboð sem krefjast endurhugsunar og tilfinningalegs jafnvægis.
Þegar kemur að heimilinu og fjölskyldunni gætir þú þurft að endurhugsa hvernig þú styður aðra og hvað þú þarft til að upplifa öryggi. Þetta er ekki tími til að láta utanaðkomandi álag stjórna þér, heldur til að byggja upp innri styrk. Í vinnu og skapandi hlutum gætir þú komist að því að sú vegferð sem þú varst á, sé ekki sú rétta og þú þurfir að breyta um takt og setja þér ný markmið.
Ást og tilfinningar fá tækifæri til að dýpka. Þú gætir fundið tengingu sem er meira en bara yfirborðstenging eða þú gætir áttað þig á því að þú þarft meira næði og skilning. Með því að vera heiðarleg/ur við sjálfa/n þig og aðra, byggir þú upp traust í samskiptum við aðra.


