Hvort sem við trúum því eða ekki, þá er október að verða búinn og nóvember að taka við. Mánuðurinn fyrir jól! Án þess að við viljum vera að stressa ykkur upp. Jólin koma á sama tíma og alltaf, hvort sem þú sért „búin/n að öllu“ eða ekki.
En það er ennþá nógur tími og við höfum allan nóvember til að hugsa um núna. Hvað segja stjörnurnar okkur um þennan skemmtilega mánuð?
Ljónið
23. júlí – 22. ágúst
Þú færð tækifæri til að skína í nóvember, en á þínum eigin forsendum. Þú finnur samt fyrir áhrifum stjarnanna þegar kemur að því hvernig þú vilt að aðrir sjái þig. Þú átt það til að vilja vera miðpunktur athyglinnar en núna er tími sem er gott fyrir þig að hlusta betur og finna samkennd með öðrum.
Í vinnu eða skapandi hlutum lífs þíns gæti verið gott fyrir þig að leita að nýjum tækifærum, en mikilvægt er að stíga varlega til jarðar og hugsa um hlutina frá öllum hliðum. Í ástarmálunum og persónulegum tengslum gætir þú fundið fyrir þörf fyrir athygli og virðingu, en líka skuldbindingu og tilgangi. Þó að hlutir líti vel út að utan verða þeir að hafa innra gildi.
Leyfðu þér að vera þú og reyndu að losa þig við þá tilfinningu að þú þurfir alltaf að vera að sanna eitthvað. Með réttri nálgun geturðu skilað af þér verkum sem fólk tekur virkilega eftir.


