Hvort sem við trúum því eða ekki, þá er október að verða búinn og nóvember að taka við. Mánuðurinn fyrir jól! Án þess að við viljum vera að stressa ykkur upp. Jólin koma á sama tíma og alltaf, hvort sem þú sért „búin/n að öllu“ eða ekki.
En það er ennþá nógur tími og við höfum allan nóvember til að hugsa um núna. Hvað segja stjörnurnar okkur um þennan skemmtilega mánuð?
Nautið
20. apríl – 20. maí
Nóvember er mánuðurinn þar sem það hentar þér að skoða hvað raunverulega gefur þér öryggi — efnislega, tilfinningalega og samfélagslega. Þú gætir fundið fyrir þörf fyrir rótfestu og stöðugleika í byrjun mánaðarins.
Þú gætir þurft að endurskoða fjárhaginn þinn, eignir og skuldbindingar og sleppa tökunum á því sem hefur breyst og hentar ekki lengur.
Í ástarmálum og samskiptum verður mikið um að vera. Þú gætir upplifað að þú þarft meiri dýpt og samstöðu til að samböndin þín virki vel. Þú hefur þörf fyrir að sýna kærleika, ekki aðeins sem staðfestingu heldur sem gjöf. Þú leyfir þér að vera berskjölduð/skjaldaður, deilir hugmyndum og ótta við höfnun.
Ef þú hlustar á líkamann þinn og hjarta og passar upp á þig, skapar þú grunninn að raunverulegri velgengni og gleði sem varir lengur.


