Gera þessar töflur hvað?

Þeir Tobias Wong & J.A.R.K eru mennirnir á bakvið þessa framleiðslu, en þetta eru hylki með 24 kt gullflögum inni í. Þeir vilja meina að nútímaþjóðfélag sé með lúxus á heilanum og vilji sífellt meira. Með þessari hönnun segjast þeir vera að koma til móts við þessar kröfur almennings og þessi hylki séu tilvalin gjöf til þeirra sem eiga ALLT.

gold-pills

Töfluna á að taka inn og á að láta hægðirnar vera gullslegnar og fallegri. Já hljómar hálffurðulega en þetta er satt. Þeir sýndu þessa hönnun í Nútímalistasafninu í San Francisco ásamt þremur öðrum hlutum. Þessir hlutir voru partur af sýningu sem hét Indulgence, sem verður kannski best þýtt sem eftirlátssemi og eru þessir hlutir einmitt eitthvað sem þú myndir aldrei leyfa þér að kaupa, nema auðvitað ef þú ættir nóg af peningum og vissir ekki alveg í hvað þú ættir að eyða þeim.

Þetta eru hinir hlutirnir sem voru á sýningunni.

Hurðastoppari sem er gerður eftir hinum sívinsælu og margfrægu vösum frá  Alvar Aalto Savoy. Steypunni er helt ofan í vasann og svo er vasinn brotinn utan af
Hurðastoppari sem er gerður eftir hinum sívinsælu og margfrægu vösum frá Alvar Aalto Savoy. Steypunni er helt ofan í vasann og svo er vasinn brotinn utan af
Kókaínskeið sem er eins og lok af Bic penna í laginu. Hún er til í gulli og bronsi
Kókaínskeið sem er eins og lok af Bic penna í laginu. Hún er til í gulli og bronsi

Cokespoon_Pendant_2_large

McDonalds kaffihræra (eins og þær vorum um 1980) og Playboy kokteilhræra úr gulli
McDonalds kaffihræra (eins og þær vorum um 1980) og Playboy kokteilhræra úr gulli

 

Þess má til gamans geta að J.A.R.K. stendur fyrir Just Another Rich Kid

SHARE