Hvaða starf hentar þínu stjörnumerki? – Bogmaðurinn

Bogmaðurinn
22. nóvember – 21. desember

Það er oft talað um að Bogmaðurinn elskar að ferðast og er það tengt því að hann þolir ekki að láta sér leiðast. Já margir Bogmenn elska að sjá heiminn en það eru líka margir sem vilja vera heima, en þurfa mikla fjölbreytni til að leiðast ekki og halda sér ferskum. Fyrir þá sem elska ferðalög er kjörið að starfa við það, t.d. sem flugmaður, flugþjónn, ferðabloggari eða annað slíkt.

Fyrir þá sem vilja starfa í heimalandi sínu getur verið sniðugt að starfa í skemmtanaiðnaðinum eða í blaðamennsku.