Hvaða starf hentar þínu stjörnumerki? – Meyjan

Meyjan
23. ágúst – 22. september

Meyjan er stjörnumerki sem þrífst almennt mjög vel á vinnumarkaðnum þökk sé þeirra eftirsóttu og gagnlegu eiginleikum. Einhver sem er nákvæmur, einbeittur og drífandi er alltaf eftirsóttur í hvaða starf sem er. Hins vegar eru ákveðin störf þar sem þessir eiginleikar verða enn gagnlegri. Meyjan getur náð miklum árangri í störfum eins og viðburðastjórnun, grafískri hönnun, vörumerkjastjórnun eða útgáfu.

Ef þú gefur Meyjunni einhverja góða hugmynd eða lætur hana fá verkefni sem krefst þess að leita að minnstu villum muntu svo sannarlega fá allt það besta sem Meyjan hefur upp á að bjóða.