Hvaða starf hentar þínu stjörnumerki? – Tvíburinn

Tvíburinn
21. maí – 21. júní

Tvíburinn er klárlega félagslyndasta stjörnumerkið. Það er eitt af aðaleinkennum Tvíburans að hann eignast vini hvar sem hann er í heiminum og nýtur þess að umgangast fólk, óháð því hvort það séu gamlir vinir eða fólk sem hann var að kynnast í gær.

Hæfni Tvíburans til að sýna öðrum hlýju kemur sér vel á vinnustaðnum og opnar fyrir honum möguleika á fjölbreyttum og spennandi störfum. Félagslegt eðli Tvíburans gerir það nefnilega að verkum að tengslanetið hans er mjög gott. Tvíburanum gæti hentað vel að vinna sem almannatengill, mannauðsstjóri eða eitthvað sambærilegt.