Hvaða starf hentar þínu stjörnumerki? – Hrútur

Hrúturinn
21. mars – 19. apríl

Hrúturinn er þekktur fyrir djarfa og ástríðufulla afstöðu sína til hlutanna. Hann er fæddur leiðtogi og er ætlað að vera brautryðjandi í atvinnugreinum sínum annað hvort í skapandi eða líkamlegum skilningi. Hann er annað hvort einhver sem getur kynnt spennandi nýja hluti eða verið sá sem vinnur erfiða líkamlega vinnu og er alltaf tilbúinn í meiri vinnu. Hann elskar að taka við stjórninni og tekst á við vandamál af sjálfstrausti, jafnvel vandamál sem flestir aðrir myndu forðast.

Vegna þessara aðdáunarverðu eiginleika gæti hann staðið sig vel innan viðskiptageirans, annað hvort í skapandi verkum eða í fjármálatengdum störfum. Hann gæti líka verið í essinu sínu sem slökkviliðsmaður eða sjúkraflutningamaður.