Hvaða starf hentar þínu stjörnumerki? – Ljónið

Ljónið
23. júlí – 22. ágúst

Ljónið er þekkt fyrir að elska það vera miðpunktur athyglinnar og getur það auðvitað þýtt að fjölmörg störf henti því. Ljónið er samt mjög vandlátt þegar kemur að því að velja sér starf. Þrátt fyrir að vilja alla athyglina er Ljónið líka með segulmagnaðan persónuleika sem dregur aðra að sér og gerir öðrum kleift að treysta þeim auðveldlega.

Störf sem henta Ljóninu vel eru auðvitað leiklist en það er einnig frábært í sölumennsku og gæti líka séð fyrir sér með því að vinna á samfélagsmiðlum, því aðdráttarafl Ljónsins gefur því mikinn trúverðugleika.