Hvaða starf hentar þínu stjörnumerki? – Steingeitin

Steingeitin
22. desember – 19. janúar

Steingeitir eru mjög vinnusamar og eitt af þeim merkjum sem hugsar hvað mest um starfsframa sinn, af öllum stjörnumerkjunum. Eins og Meyjan, hefur Steingeitin ýmsa eiginleika sem gera þær mjög eftirsóknarverðar í margskonar störf, því þær eru metnaðarfullar, með skýra markmiðasetningu. Þær geta því passað í fjölmörg störf.

Það eru samt störf sem henta Steingeitinni alveg einstaklega vel, en þar má nefna vísindastörf, tæknistörf eða læknisfræði.