Hvaða starf hentar þínu stjörnumerki? – Fiskurinn

Fiskurinn
19. febrúar – 20. mars

Fiskur, eins og Vogin, er merki sem er að miklu leyti tengt listum. Hann er samt ekki líklegur til að gera sér starfsferil úr listinni, heldur deilir hann list sinni aðeins með vinum sínum og fjölskyldu. Hann er mjög skapandi og mun una sér vel í skapandi störfum.

Samfélagið skiptir Fiskinn miklu máli og það gæti hentað honum vel að vinna með börnum og leiðbeina unga fólkinu til betri vegar.