Hvaða starf hentar þínu stjörnumerki? – Vogin

Vogin
23. september – 22. október

Ein staðreynd sem gleymist oft er ást Vogarinnar á list. Margir halda að fólk í Voginni sé alvarlegt og dularfullt fólk en í raun og veru eru þau í góðum tengslum við tilfinningar sínar og tilfinningalega tjáningu. Sterk réttlætiskennd Vogarinnar myndir gera hana að frábærum dómara en það eru meiri líkur á því að Vog finni sig innan heims listarinnar.

Það myndi passa Voginni vel að vinna í list og vera jafnvel sjálf listamaður og skapa eitthvað. Einnig gæti hentað henni vel að vera sýningarstjóri, listagagnrýnandi eða jafnvel aðstoðarmaður listamanns á vinnustofu hans.