Marengsdraugar

Það styttist í Hrekkjavökuna og því tilvalið að fara undirbúa skemmtilegheitin. Eldhússystur bjóða uppá þessa uppskrift.

Marengsdraugar 

4 eggjahvítur (við stofuhita) 
1/2 tsk cream of tartar 
200 gr flórsykur 
1/2 tsk vanilludropar 

Kveikið á ofninum á 100°c 

Þeytið eggjavíturnar létt eða þar til þær eru farnar að freyða, setjið þá cream of tartar útí og þeytið þar til eggin eru farin að létt stífna. Bætið flórsykrinum í, 1 msk í einu og þeytið á milli þar til eggin eru orðin stífþeytt að lokum er vanilludropunum þeytt saman við. Setjið í sprautupoka  sem er með víðum kringlóttum stút (t.d wilton nr. 12) 

Sprautið marengs á bökunarpappír, hægt er að hafa draugana nokkuð þétta þar sem marengs þenst ekki mikið út við bakstur. Hægt er að nota kökuskraut sem augu, einnig er hægt að kaupa sykuraugu og setja þau, ámálað andlit með bræddu súkkulaði eða teikna þau með köku penna. Bakið í klukkutíma og korter, ef draugarnir eru minni þarf styttri tíma og eins ef þeir eru stærri þarf lengri. Þegar tíminn er liðinn er ágætt að koma aðeins við einn draugog athuga hvort hann sé ekki kominn með harða skel. Lokið ofninum aftur og leyfið draugunum að hinkra í ofninum í ca 8 tíma (ágætt getur verið að geyma þá í ofninum yfir nótt). 

SHARE