Minningarathöfn fyrir missi á meðgöngu og barnsmissi

Mánudaginn 15. október næstkomandi kl.19.30 verður haldin minningarathöfn fyrir missi á meðgöngu og barnsmissi í Hallgrímskirkju.
Allir eru velkomnir.

Stuðningshópurinn vill með athöfninni gefa þeim sem misst hafa barn og aðstandendum þeirra tækifæri til þess að hittast og eiga fallega stund saman. Með minningarathöfninni er það einlæg von stuðningshópsins að opna á umræðuna um missi á meðgöngu og barnsmissi, sem og hjálpa aðstandendum þeirra sem missa að sýna hluttekningu í sorginni.
Það eru til orð til þess að lýsa börnum án foreldra, mökum án maka en ekkert orð er til yfir það hlutverk að vera foreldri án barna.

Styrktarfélagið Líf hefur unnið í samvinnu við Landspítalann að gerð bæklinga um missi á meðgöngu og er sú vinna að skila sér í haust í þremur bæklingum sem foreldrar fá þegar þeir koma inná Kvennadeild Landspítalans vitandi að þeir fari þaðan eftir fæðingu með tómar hendur. Bæklingarnir eru gerðir til þess að reyna að hjálpa þeim að takast á við lífið eftir missi og að reyna að gera upplifun þeirra á Kvennadeildinni sem bærilegasta. Einnig er að koma út bæklingur til aðstandenda – og kemur hann út núna 15 Október

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here