Ostasalat frá Matarlyst

Það eru svo margar girnilegar uppskriftir sem koma frá Ragnheiði í Matarlyst. Hér er til dæmis þetta ostasalat sem er alltaf vinsælt og gott. Berið fram með t.d snittubrauði eða öðru góðu brauði, ristuðu brauði eða ritz kexi.

Hráefni

250 ml majónes

1 dós sýrður rjómi (180 g)

1 ½ msk karrý jafnvel meira smakka til

2 paprikur rauð og gul

1 blaðlaukur

Vel vínberjum skorin í tvennt

1 mexico ostur

1 camenbert eða Bónda brie

1 lítil dós ananas hringir, sigtið safann frá saxið smátt.

Aðferð

Blandið saman í skál mæjónesi, sýrðum rjóma ásamt karrý, skerið allt annað niður, bætið út í skálina, blandið saman.

Sjá einnig:

SHARE