Skjaldbökusmákökur

Skjaldböku smákökur

128 gr hveiti
43 gr kakó
1/4 tsk. salt
120 gr smjör, mjúkt
134 gr sykur
2 eggjahvítur
1 eggjarauða
2 msk mjólk
1 tsk vanilludropar
1 1/4 bolli pekan hnetur (fínt hakkaðar)

Aðferð

Hitið ofninn í 175°c

Sameinið hveiti, kakó og salt, sett til hliðar. Þeytið saman smjör og sykur þar til létt og flöffí. Bæta við eggjarauðu, mjólk, og vanilludropum, blandið saman þar til deigið er kekklaust. Hrærið hveiti blöndunni saman við deigið. Hyljið deigið með plasti og kælið í a.m.k 1 klukkustund.

Léttþeitið 2 eggjahvítur í skál þar til þau freyða. Setjið pekanhneturnar í lága skál. Náið í deigið úr kælinum og búið til kúlur sem eru ca 2.5 cm á þykkt. Rúllið deiginu í eggjahvítunum og svo í pekanhnetunum. Setjið kúlurnar á bökunapappír með a.m.k. 2 cm milllibili. Þrýstið á kúlurnar með  ½ tsk mæliskeið til að gera holu í kúluna.

Bakið í um það bil 12 mínútur.

Þegar kúlurnar koma út úr ofninum þarf að þrýsta aftur á kúlurnar til að viðhalda dældinni.

Karamella

400gr sykur

170 gr. ósaltað smjör

240 ml rjómi

1 msk sjávarsalt

Aðferð:

Bræðið sykur á pönnu á meðalhita og hrærið í. Þegar sykur við það að bráðna bætið smjörinu við og hrærið í leiðinni. Hellið síðan rjómanum rólega í karamelluna og hrærið. Því síðast bæið saltinu útí.

Látið karalmelluna kolna í 10-15 min áður en þið notið hana.

Hellið karamellunni í dældina þegar kökurnar eru búnar að fá augnablik til að kólna.

SHARE