Stjörnuspá fyrir nóvember 2023 – Bogmaðurinn

Bogmaðurinn
22. nóvember – 21. desember

Þú getur loksins farið að slaka á aftur í vinnunni. Þetta hefur örugglega verið erfiður tími, hingað til en nú fara hlutirnir að verða betri. Þú hefur lært það í gegnum lífið að þú þolir ekki málamiðlanir. Þú vilt bara hafa hlutina eins og ÞÚ VILT eða sleppa því.

Þú leitar að jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Láttu renna í bað, taktu þér bók í hönd og slllaaaakkkaaa! Mundu að hafa trú á fjárhagslegri afkomu þinni. Þú átt það til að vera þinn versti óvinur. Ekki láta vantraust þitt stoppa þig í að finna ástina í lífi þínu. Núvitund er eitthvað sem virkar vel fyrir þig. Vertu HÉR og NÚ og njóttu!