Stjörnuspá fyrir nóvember 2023 – Vogin

Vogin
23. september – 22. október

Einkalífið þitt er í miklu jafnvægi þessa dagana eins og þú sjálf/ur. Þú ættir því að eyða miklum tíma með maka þínum og þínum nánustu á komandi vikum.

Það er einnig kominn tími á að henda út gömlum ávönum. Já það þýðir að þú þarft kannski aðeins að draga niður í daðrinu, en þú kemst alveg yfir það. Það þýðir kannski bara að þú skapir pláss fyrir eitthvað enn betra. Þú ert tilbúin/n að dýfa þér í eitthvað sem þú hefur ástríðu fyrir og hætta því sem lætur þér ekki líða vel.