Stjörnuspá fyrir nóvember 2023 – Hrúturinn

Hrúturinn
21. mars – 19. apríl

Það munu verða einhverjar hindranir á vegi þínum í nóvember kæri Hrútur. Mánuðurinn byrjar rólega en verður aðeins viðburðaríkari um miðjan mánuð. Þú verður látin/n taka ákvörðun og standa og falla með henni. Það getur líka verið að einhver sem þú þekkir muni reyna að svíkja þig. Þú kemst að því hverjir eru alvöru vinir þínir og hverjir eru bara í lífi þínu tímabundið.

Heilsan þín verður góð í þessum mánuði en þú þarft að vera vakandi fyrir því að passa upp á þig. Hreyfðu þig reglulega og vertu meðvituð/aður um það hvað þú setur ofan í þig. Passaðu að drekka nóg vatn. Þig þyrstir í einhverjar breytingar. Þegar þú upplifir þig fasta/n eða staðnaða/n þá er það einfaldlega áminning um meðfædda seiglu þína og þrá til að vaxa sem manneskja. Mundu að það að segja já er oft fyrsta skrefið til að vaxa.