Stjörnuspá fyrir nóvember 2023 – Fiskurinn

Fiskurinn
19. febrúar – 20. mars

Það reynir á þig í vinnunni núna en það verður bara til þess að þér opnast ný tækifæri. Notaðu þér allar aðstæður sem kostur er á. Þú ert á hárréttri leið og ekki láta afbrýðissemi annarra hafa áhrif á þig. Vertu alltaf sanngjörn/gjarn við aðra.

Þér mun finnast þú þurfa að halda áfram, hvort sem það er í einkalífinu eða í vinnu. Sestu niður með góðum vin og spjallaðu. Það hljómar ekki flókið en þú gerir það alltof sjaldan. Þér leiðist að hafa ekkert að gera. Þess vegna muntu taka nóvember með trompi. Þú ert tilbúin/n að taka áhættur og það eru áhætturnar sem hafa alltaf hrætt þig.