Stjörnuspá fyrir nóvember 2023 – Krabbinn

Krabbinn
21. júní – 22. júlí

Þú ert vanalega akkerið fyrir alla aðra, skjólið í storminum, en í nóvember verður staðan aðeins önnur. Stjörnurnar eru að segja þér að taka því rólega og hugsa um heilsuna þína, líkamlega og andlega.

Finndu hverjir veikleikar þínir eru og farðu að vinna í þeim og þú verður sterkari en áður. Þú ert mjög mikið til í kósýkvöld um þessar mundir og það verður einhverskonar heilun hjá þér eða andleg framför. Þú hræðist það ekki að gera mistök. Það virðist sem örlög þín séu þér í vil, svo allt endar vel að lokum. Velgengni þín er bara undir þér komin – Þú getur ekki treyst á heppnina.