Stjörnuspá fyrir nóvember 2023 – Tvíburinn

Tvíburinn
21. maí – 20. júní

Sambönd þín verða í forgrunni í nóvember kæri Tvíburi. Þú nennir ekki lengur að standa í yfirborðskenndum samskiptum. Þú skilur í raun og veru hvaða tengingar eru alvöru, hvort sem það eru vina- eða rómantískar tengingar.

Taktu þér tíma til að meta það hvaða sambönd þú vilt rækta. Þú átt það til að finna fyrir afbrýðissemi og eigingirni og skalt vera vakandi fyrir því í öllum samskiptum. Þú ert mikið sjarmatröll og hefur mikinn sannfæringarkraft og þú mátt alveg nota þér það.