Stjörnuspá fyrir nóvember 2023 – Steingeitin

Steingeitin
22. desember – 19. janúar

Einkalífið gæti verið örlítið stormasamt um þessar mundir. Þið getið átt yndislegt kvöld saman, en daginn eftir getur verið annað upp á teningnum.

Þú munt fara að velta fyrir þér hvort þú sért í draumastarfinu þínu. Ef ekki, hvað þarftu að gera til að komast í draumastarfið þitt? Mundu að hafa trú á sjálfri/um þér. Það er alveg sama hvað það er, þú massar það. Þú gerir það alltaf.

Gefðu þér tíma til að draga andann djúpt og hægja á þér. Forðastu að ganga fram af þér og mundu að líkami þinn hefur ákveðin takmörk.