Stjörnuspá fyrir nóvember 2023 – Vatnsberinn

Vatnsberinn
20. janúar – 18. febrúar

Nú er ekki rétti tíminn fyrir niðurdrepandi hugsanir og einsemd. Vertu með vinum þínum og maka og búðu til fallegar og góðar minningar. Það eru yndislegir tímar framundan. Þú munt vilja skemmta þér í þessum mánuði og áttar þig á því að þú þarft ekki að eyða fullt af peningum til að hafa gaman. Þú veltir því fyrir hvort þú eigir að breyta til en það liggur ekkert á svo þú skalt ekki stressa þig

Ef þú nærð yfirhöndinni í samtölum, passaðu þig á að verða ekki hrokafull/ur og að tala ekki niður til fólks