Þrista moli

Hrikalega gott nammi frá Matarlyst sem allir elska. Þristur er eitt af mínu uppáhalds súkkulaði og því ekki að dúndra honum með stökku kornflexi.

Hráefni

150 g smjör
2 pokar þristur (500 g)
1 pakki appalo fylltar lakkrísreimar
200 g kornflex mulið aðeins

Aðferð

Bræðið saman við vægan hita smjör og þrist, hrærið vel saman þar til samlagast.
Passið að láta súkkulaðið alls ekki sjóða.
Klippið lakkrísreimar niður, bætið út í pottinn. Bætið kellogs corn flakes út í veltið vel saman með sleif. Setjið í form bökunnarpappír sem er ca 20×20 þjappið vel niður í formið.
Setjið inn í ísskáp eða í kalt rími um stund, skerið niður í hæfilega stóra bita, njótið en geymið þó rest í lokuðu íláti inn í ísskáp, einnig er í lagi að frysta molana.

SHARE