Ung stúlka frá Kína sést hér taka þátt í söngvakeppni þar í landi. Hún heitir Celine Tam og er aðeins fimm ára gömul. Ekki nóg með að hún er að koma fram í sjónvarpi fyrir alþjóð þá er hún að syngja á ensku, sem er framandi tungumál fyrir hana. Hún rúllar þessu upp og gefur öllum nærstöddum gæsahúð í leiðinni! https://www.youtube.com/watch?v=nhKAUoF8fqQ#t=18&ps=docs
Núna um helgina fer fram Íslandsmeistaramótið í póker fyrir árið 2014 en mótið fer fram á Hótel Borgarnesi þetta árið. Mótið hefur aldrei verið glæsilegra, enda er póker er í mikilli uppsveiflu hérlendis þessa dagana, þá sérstaklega eftir að IFP (International Federation of Poker) sendi pókersambandinu bréf þess efnis að „Match Poker“ væri hugaríþrótt og þar með lögleg íþrótt....