Marengs með kókosbollurjóma og Marskremi

Getur þetta orðið eitthvað girnilegra? Kókosbollur, marengs og marskrem! Hljómar svakalega vel. Uppskriftin kemur frá Matarlyst á Facebook.

Hráefni

6 eggjahvítur
300 g sykur
1 tsk lyftiduft
100 g Rice krispies

Aðferð

Hitið ofninn í 120 gráður blástur.

Eggjahvítur þeyttar þar til þær byrja að freyða þá er sykrinum bætt útí ásamt lyftidufti, stífþeytið. Bætið Rice Krispies varlega út í, í lokin með sleikju.

Setjið bökunarpappír á ofnplötu, teiknið hring eftir t.d botni á formi eða disk. Setjið marengsinn á og dreifið út.

Setjið inn í 120 gráðu heitan ofninn í 90 mín.

Á milli

1/2 l rjómi
8 kókosbollur litlar (1 pakki)

Þeytið rjómann, bætið kókosbollunum út í brjótið þær niður með sleikju, hrærið varlega saman við rjómann. Setjið á milli botnanna.

Krem

200 g mars (4 lítil stykki)
50 g suðusúkkulaði
50 g smjör
4 eggjarauður
60 g flórsykur

Aðferð

Bræðið súkkulaði og smjör saman í potti við vægan hita. Þeytið eggjarauður og flórsykur vel saman og þá meina ég vel.

Hellið súkkulaðiblöndunni í skömmtum út í hrærivélaskálina, blandið varlega þar til komið er saman.

Skreytið af vild, eða ekki…

Sjá einnig:

SHARE