Stjörnuspá fyrir apríl 2024 – Bogmaðurinn

Bogmaðurinn
22. nóvember — 21. desember

Jafnvel þó það sé ekki friður á öllum vígstöðvum í lífi þínu um þessar mundir, þá getur þessi „ófriður á heimavelli“ orðið til þess að þú fáir á endanum meiri fyllingu í líf þitt kæri Bogmaður. Þó eitthvað bjáti á í heimilislífinu þín þá getur það akkúrat verið seinasta hálmstráið sem verður til þess að þú velur velferð yngstu meðlimana í fjölskyldunni fram yfir allt annað.

Það er ekkert sem gleður þig meira en skapandi verkefni sem þú getur eytt tíma í. Það verður nóg að gera í vinnu hjá þér í apríl en þú munt alveg hafa nægan tíma til að skemmta þér líka. Forðastu allar óþarfa fjárfestingar og settu heilsu þína í forgang. Ef þú þarft, skaltu ekki hika við að biðja þína nánustu um aðstoð.