Stjörnuspá fyrir apríl 2024 – Fiskurinn

Fiskurinn
19. febrúar — 20. mars

Þú ert að gefa of mikið af þér og átt erfitt með að segja „nei“. Veltu fyrir þér hvort þú segir „já“ af því þú vilt gera eitthvað eða af því þú vilt í raun og veru gera eitthvað kæri Fiskur. Þú ert að leggja lokahönd á einhverskonar verkefni sem þú hefur verið að takast á við, en þetta verkefni hefur átt hug þinn allan, seinustu misseri.

Jafnvel þó að þú hafir ótrúlega samskiptahæfileika gæti löngun þín til að ná sem bestum árangri skaðað vináttu þína við aðra, óháð aðstæðum. Sambönd við fólk þurfa tíma til að styrkjast og dafna. Þetta snýst allt um framfarir, en ekki fullkomnun.