Stjörnuspá fyrir apríl 2024 – Hrúturinn

Hrúturinn
21. mars – 19. apríl

Það er kominn tími til að vakna, hrista þig og undirbúa þig fyrir að breyta aðstæðum sem betur mættu fara í lífi þínu. Það er kominn tími til að „gefa þér start“ og láta bara vaða kæri Hrútur. Taktu það inn í myndina að þegar þú gerir þetta ertu að valda sjálfri/um þér tímabundnum sársauka.

Það getur líka verið að þú munir eiga í erfiðleikum í samskiptum í dagsdaglega lífi þínu. Þér líður kannski eins og þig langi að „kasta sprengjum“ en það er mjög mikilvægt að nema staðar og skoða hvort þú eigir einhverja sök í málunum og hvað þú getir gert betur. Ef þú gerir þetta verður mánuðurinn frábær.

Einbeittu þér að því að passa upp á heilsuna þína og þá ekki síst andlegu heilsuna, því þá muntu halda góðu jafnvægi á öllum sviðum. Það eru nýir og ævintýralegir tímar framundan.