Stjörnuspá fyrir apríl 2024 – Krabbinn

Krabbinn
22. júní — 22. júlí

Sviðsljósið er á þér í apríl kæri Krabbi. Þetta er ekki besta tímasetningin því þér líður ekki eins og þú sért upp á þitt besta. Það er mjög mikilvægt að þú sért með allt þitt á hreinu í þessum mánuði, sérstaklega á vinnustaðnum. Taktu þér tíma til að framkvæma allt sem þú þarft að gera og leyfðu þér að vera gott fordæmi.

Þú vilt forðast allt drama og hafa allt sem auðveldast í lífi þínu. Þú ert þreytt/ur á því að fólk geri hlutina erfiðari en þeir þurfa að vera og skalt reyna að verja tíma þínum með fólki sem er auðvelt að vera með. Nærðu þið andlega og tileinkaðu þér nýjar samskiptaleiðir og hugsanir.

Ef þú ert það nú þegar þá mun ástin blómstra og það verður mikil rómantík í lok apríl. Eftir mánuðinn mun þér líða eins og þú sért endurnærð/ur og verður meira en tilbúin/n í það sem koma skal.