Stjörnuspá fyrir apríl 2024 – Sporðdrekinn

Sporðdrekinn
23. október — 21. nóvember

Hlutirnir geta verið pínulítið óreiðukenndir í byrjun apríl kæri Sporðdreki, samstarfsmenn koma og fara og þú átt smá erfitt með skipulagningu. Yfirleitt ert þú sem persóna svöl/svalur, róleg/ur og yfirveguð/aður. Það er ekki raunin í þessum mánuði. Þú ert pirruð/aður og gætir átt það til að lenda í klaufalegum óhöppum. Besta leiðin til að takast á við þetta er að hægja aðeins á þér og róa þig niður. „Ró“ ætti að vera þema mánaðarins hjá þér.

Þú ert alltaf mjög ákveðin/n og veist hver þú ert og hvaðan þú kemur. Fólk gæti haldið að þú sért snobbuð/aður og ýtin/n, en veist að þú ætlar þér bara góða hluti.