Stjörnuspá fyrir apríl 2024 – Tvíburinn

Tvíburinn
21. maí – 21. júní

Það er mikið um misskilning í þessum mánuðum og þú munt upplifa eitthvað sem hægt væri að lýsa sem tilfinningalegum timburmönnum kæri Tvíburi. Hugleiddu hvernig þú gætir hafa átt þátt í einhverjum þessa hluta. Kannski hefurðu sagt eitthvað særandi óviljandi? Einbeittu þér að þessu og íhugaðu tilfinningar hins aðilans þegar þú ferð í að laga hlutina.

Gleymdu ekki að þó þú gefir fólki frábær ráð þarf ekki að vera að fólk fari eftir þeim. Þú ert ekki viðkvæm/ur fyrir að gera mistök og ert því gjörsamlega afslöppuð/aður í vinnunni þinni. Þú þarft að hafa það á hreinu að það er í lagi að taka smá tíma fyrir sjálfan þig til að stunda smá sjálfsskoðun. Og slepptu tökunum á því sem gagnast þér ekki lengur.