Stjörnuspá fyrir desember 2023 – Bogmaðurinn

Bogmaðurinn
22. nóvember – 21. desember

Einbeittu þér að því að sinna þörfum þínum svo þú getir verið tiltækari fyrir aðra og þau málefni sem þér þykir svo sannarlega vænt um. Þú getur ekki tekið þátt í að vökva sameiginlega garðinn ef brunnurinn er tómur. Skoðaðu það hverjir þínir styrkleikar eru og hverja þú átt að. Þú verður að gera þér grein fyrir því að mistök eru hluti af framförum. Lærðu af þeim og notaðu þá lærdóma til að knýja þig áfram. Vertu góð/ur við sjálfa/n þig á þessum augnablikum – þau eru tækifæri til að vaxa.

Það munu einhverjir einstaklingar úr fortíðinni „poppa upp“ í desember, hvort sem það eru fyrrum vinnufélagar, æskuvinir eða fyrrum kærastar/ur. Vertu viðbúin/n.