Stjörnuspá fyrir desember 2023 – Meyjan

Meyjan
23. ágúst – 22. september

Það færist yfir þig ró í desember og þig langar að eiga notalegan tíma heima. Leyfðu þér það. Þegar líður á mánuðinn muntu finna fyrir sköpunargleði sem býður upp á marga möguleika og nýja hluti. Þú gætir tekið eftir breytingum eða fundist þú vera að vaxa uppúr mynstri sem áður var þér kunnuglegt. Þróun er hluti af náttúrulegu flæði lífsins.

Þegar þú slakar á og leyfir þér að íhuga gætirðu áttað þig á því að það er eitthvað eða einhver sambönd í lífi þínu sem þjóna þér ekki lengur… allavega ekki í því formi sem þau eru í núna. Leyfðu tilfinningum þínum að koma upp á yfirborðið svo þú getir horfst í augu við þær og leyft sárunum að gróa.