Stjörnuspá fyrir desember 2023 – Vogin

Vogin
23. september – 22. október

Taktu þér tíma til að safna kröftum til að takast á við vanmáttinn sem þú ert að upplifa. Leyfðu þér að tengjast öðrum því einangrun lætur vandamálin oft virðast enn stærri en þau eru. Þú þarft að styrkja tilfinningalega grunninn þinn. Það hefur margt verið í gangi upp á síðkastið og þú vilt geta tekist á við það. Þú hefur forðast að horfast í augu við sjálfan þig en ert að fara að breyta því. Þú getur ekki hellt úr tómum bolla.

Settu þínar þarfir ofar öllu og ekki einu sinni láta þér detta það í hug að það sé sjálfselska.