Stjörnuspá fyrir desember 2023 – Hrúturinn

Hrúturinn
21. mars – 19. apríl

Þig langar að víkka út sjóndeildarhringinn þinn og læra eitthvað nýtt. Það skiptir alltaf máli að þú sýnir fólki eins raunverulega hlið á þér og þú mögulega getur. Passaðu bara að undirbúa þig og segja hluti ekki án þess að hugsa eða hafa tilgang. Ef þú segir eitthvað í fljótfærni endar bara með því að þú þurfir að biðjast afsökunar.

Þú ert að setja þér ný markmið í vinnumálum og leyfðu þér að skoða veikleika þína. Annars muntu aldrei ná markmiðum þínum algjörlega. Það er auðvitað ljóst að því meira og betur sem þú planar því meiri verður velgengni þín. Það hljómar leiðinlega en er dagsatt.

Á þessum tíma ársins er óhjákvæmilegt að hitta misskemmtilega fjölskyldumeðlimi og það getur meira en verið að það verði einhverjar sættir þessi jólin.