Stjörnuspá fyrir desember 2023 – Steingeitin

Steingeitin
22. desember – 19. janúar

Það er alltaf brjálað að gera í desember og þess vegna er mjög mikilvægt að njóta rólegu stundanna. Mundu að sýna þér blíðu og hvíla þig þegar þú þarft á hvíldinni að halda. Þér finnst þú vera frekar óundirbúin/n fyrir þær áskoranir sem lífið er að koma með fyrir þig. Leyfðu þér að opna þig á raunverulegan hátt fyrir nýjum vinum og vertu vakandi fyrir rómantískum tækifærum í gegnum sameiginlega vini.

Njóttu þess í desember að vera í friði og ró með þínum nánustu og ef einhver ágreiningur er í gangi, skaltu gera þitt til að leggja hann til hliðar og sýndu öðrum samúð.