Stjörnuspá fyrir desember 2023 – Krabbinn

Krabbinn
21. júní – 22. júlí

Skortur á sjálfstrausti í vinnunni þinni mun láta þig fara að hugsa hvort þú sért að leggja of mikið á þig fyrir of lítið. Ekki berja þig niður með harðri sjálfsgagnrýni. Ef lítið hefur verið að gera í rómantíska hluta lífs þíns gæti verið að það sé að verða breyting þar á. Í stað þess að fara alltaf á eftir sömu týpunni er kannski kominn tími til að breyta aðeins til. Ekki flýta þér um of því það getur bara leitt til ástarsorgar.

Þú ert orkumikil/l og líður dásamlega. Þú átt ekki von á neinum vandamálum nema þeim sem þú skapar sjálf/ur. Þú þarft að setja reglur fyrir þig sjálfa/n og passa að fara ekki í neinar öfgar því þú ert mjög öfgakenndur karakter.