Stjörnuspá fyrir desember 2023 – Tvíburinn

Tvíburinn
21. maí – 20. júní

Það er mikil einstaklingshyggja í samfélaginu en það eru samböndin þín við annað fólk sem gerir lífið skemmtilegra. Þú munt þurfa að leggja mat á öll þín sambönd og forgangsraða hvaða fólk skiptir þig mestu máli. Segðu traustum vini frá því sem hvílir á þér og ef þörf er á, skaltu leita þér huggunar í návist þeirra sem geta veitt umhyggju og kærleika.

Ef þú þarft að taka stórar ákvarðanir varðandi fjármál í desember, skaltu fara varlega. Þú átt það til að koma þér í dramatískar aðstæður, jafnvel þegar þú segist ætla að forðast þær, sérstaklega á fullu tungli. Ekki fara af stað í neinar „orrustur“ því þú ert ekki að fara að hafa betur.