Stjörnuspá fyrir desember 2023 – Sporðdrekinn

Sporðdrekinn
23. október – 21. nóvember

Hugarfar þitt hefur ekki verið það jákvæðasta undanfarið og þú vilt breyta því. Þú ert mjög meðvituð/aður um að þú getur svolítið stjórnað hugarfari þínu með því að breyta hugsanahætti þínum. Þema desember verður því: að gera það sem þarf til að vera besta útgáfan af sjálfri/um þér. Þig hefur langað mikið að tjá þig meira með því að nota sköpunargáfu þína og þú átt að láta það eftir þér. Hættu að hugsa um að þú verðir að vera best/ur í öllu og leyfðu þér að prófa þig áfram.

Þig langar að tjá þig meira og ættir að láta vaða á það. Talaðu opinskátt við þá sem þú treystir og sjáðu hvað gerist. Þú munt eiga djúp og innihaldsrík samskipti sem allir hlutaðeigandi munu njóta.