Stjörnuspá fyrir desember 2023 – Ljónið

Ljónið
23. júlí – 22. ágúst

Þig langar mjög mikið að laga og heila sambönd sem hafa ekki verið í lagi og munt gefa fólki, sem áður hefur valdið þér vonbrigðum eða særindum, tækifæri til að bæta sitt ráð. Þú verður að geta fyrirgefið og sýna einlægan vilja til að vilja laga hlutina. Vertu tilbúin/n að sjá þinn hlut líka. Þér leiðist tilbreytingaleysi og það gerir þig þunga/n og pirraða/n. Þú ert tilbúin/n fyrir breytingar. Þú þarft að laga til og henda hlutum til að sjá hvað þú vilt í raun og veru.

Þú þarft að læra að slaka líka á. Vera ein/n með sjálfri/um þér og njóta þíns eigins félagsskapar.