Stjörnuspá fyrir desember 2023 – Vatnsberinn

Vatnsberinn
20. janúar – 18. febrúar

Þú ferð að horfa inn á við í desember. Þú hefur nógan tíma til að hugsa og velta fyrir þér samböndum þínum og hvers virði þau eru þér. Taktu eftir því hverjir samgleðjast þér virkilega og styðja þig og hverjir gera það ekki. Þú ert að fara að kynnast nýju fólki. Flestir af þeim vilja þér vel en sumir ekki, passaðu þig á þeim síðarnefndu. Það verður mikið um að vera í félagslífinu en þegar líður að áramótum finnur þú að þú ert alveg til í aðeins meiri rólegheit.

Ljúktu við þau verkefni sem þurfa að klárast og byrjaðu með „hreint borð“ á nýja árinu. Hafðu trú á sjálfri/um þér og tjáðu þig um tilfinningar þínar og skoðanir.