Stjörnuspá fyrir maí 2024 – Fiskurinn

Fiskurinn
19. febrúar — 20. mars

Þegar maí gengur í garð mun áherslan þín vera á tilfinningalegt öryggi þitt og á heimilið. Hlúðu að hreiðrinu þínu, hvort sem það er með endurbótum á heimilinu eða með því að hlúa að fjölskyldutengslum. Þú finnur fyrir aukinni gleði með hækkandi sól og finnur fyrir aukinni ástríðu í því sem þú ert að gera og sköpunargáfa þín er í hámarki. Ef þú hefur verið í einhverskonar listrænni iðju er kominn tími til að rækta það. Það geta orðið einhverjar breytingar í kortunum en þá reynir á aðlögunarhæfni þína kæri Fiskur. Ef einhverjir samskiptahnökrar verða á vegi þínum skaltu sýna þolinmæði og vera skýr í tjáningu þinni.

Það verður rómantík á vegi þínum. Ef þú ert einhleyp/ur þá fer eitthvað að glæðast í þeim málum en ef þú ert í sambandi munu tengslin bara dýpka. Í lok mánaðar skaltu snúa athyglinni inn á við; hugleiða persónulegan vöxt. Heilsan krefst athygli – reglulegt eftirlit, íhugun og slökun mun reynast þér vel.