Stjörnuspá fyrir mars 2024 – Tvíburinn

Tvíburinn
21. maí – 21. júní

Elsku Tvíburi, það verður bjart yfir þér í mars. Vandamálin virðast einhverra hluta vegna léttvægari en áður. Ef einhver spyr þig ráða ertu með öll svörin og vinir og samstarfsfélagar leita til þín. Gleymdu ekki að þó þú gefir ráð þarf ekki að vera að fólk fari eftir þeim. Sjálfstraust þitt er mikið í mánuðinum svo þú ættir að nota tímann vel og velja verkefnin af kostgæfni.

Þú þarft að meta það á heiðarlegan hátt hvort þú sért að fara fram á alltof lítið í samböndum þínum og af sjálfri/um þér. Þú mátt, og átt, að setja markið hærra.

Losaðu þig við óheilbrigð sambönd og hluti og einbeittu þér að því að hafa fólk í kringum þig sem er gott fyrir þig. Þetta getur tekið á en er sannarlega þess virði.


Sjá einnig: