Stjörnuspá fyrir mars 2024 – Bogmaðurinn

Bogmaðurinn
22. nóvember – 21. desember

Það er mikið jafnvægi milli þín og einkalífs þíns. Það er mikill friður í hjarta þínu sem gefur þér sjálfstraust sem gerir þig aðlaðandi og viðkunnanlega/nn. Ef þú kveikir á þokkanum mun fólk nálgast þig og þú kynnist nýju fólki.

Það er kominn tími til að loka ákveðnum kafla í lífi þínu. Þessi kafli tengist fjölskyldunni eða heimilinu. Með því að gera það geturðu færst nær því að ná markmiði þínu eða að halda áfram uppbyggingu á einhverju sem þú hefur séð fyrir þér. Spyrðu fleiri spurninga í samtölum. Leyfðu þér að fara dýpra í hlutina og skilja sjónarmið annarra.

Sjá einnig: