Stjörnuspá fyrir mars 2024 – Krabbinn

Krabbinn
22. júní – 22. júlí

Þessi mánuður verður mánuðurinn þar sem þú byrjar með hreinan skjöld. Þú vilt forðast allt drama og hafa allt sem auðveldast. Þú ert þreytt/ur á því að fólk geri hlutina erfiðari en þeir þurfa að vera. Vertu með fólki sem er auðvelt að vera með.

Nærðu þið andlega og tileinkaðu þér nýjar samskiptaleiðir og hugsanir. Ef þú ferð að læra eitthvað alveg nýtt ertu á grænni grein. Það hafa verið erfiðleikar í fjármálunum það sem af er þessu ári en það fer að glaðna yfir þessum málum í mars.

Þú getur sóað tíma þínum í þessum mánuði í að vera með eftirsjá, að hugsa um hvað þú hefðir átt að segja eða gera. Ekki gera það. Gefðu þér sjálfri/um frelsi frá fortíðinni og einbeittu þér að því sem þú getur gert í núinu.

Sjá einnig: